Hann Mummi þjöl var algjört böl á flestum sviðum Og spinnigal, hann stal og stal, var stór í sniðum Á steypubíl með bleikum fíl á öllum hliðum Hann ók öll kvöld í hálfa öld og steypti tjöld Mummi átti madólín (Mummi þjöl, mummi þjöl) Gamla munnhörpu og sög (Mummi þjöl, mummi þjöl) Snæddi mör og magarín (Mummi þjöl, mummi þjöl) Kunni milljón sálmalög (Mummi þjöl, mummi þjöl) Svo breytti hann nafni sínu í Olof Palme og hann fór á skútu Gerði út á skötusel sem hann breytti í fiskimel Allt gekk vel þar til hann fór í land, þá stal hann rútu Sem hann breytti í sjóflugvél, hún flaug víst aldrei nógu vel Hann Mummi þjöl flaug norður Kjöl á flugvélinni Rakst á fjall, það söng og small í fjallshlíðinni Hann hrökk í kút, svo skreið hann út úr beyglu sinni Um morguninn kom hreppstjórinn og setti hann inn Mummi átti madólín (Mummi þjöl, mummi þjöl) Gamla munnhörpu og sög (Mummi þjöl, mummi þjöl) Snæddi mör og magarín (Mummi þjöl, mummi þjöl) Kunni milljón sálmalög (Mummi þjöl, mummi þjöl) Er slapp hann út fór hann á ball í fötum sem að hann fékk lánuð Upp á senu fór hann fús, til að spila ræl og blús Svo henti hann saxófón í gengilbeinu svo hún lá í mánuð Þótt hún væri hálfgert skass, þá jafnast ekkert á við jazz Og þarna lá hún sljó og föl, á meðan Mummi fékk sér öl Æ já hann var víst algjört böl Mummi þjöl, Mummi þjöl, Mummi þjöl, Mummi þjöl!