Þú gerir mig vitlausan Og hverfur síðan frá mér Vofa sem ég sé um nótt Endrum og eins yfir árin Ég fann þig loksins aftur En þú rannst mér úr greipum og hvarfst mér úr sýn Reikar þinn hugur stundum til mín? Þegar þú ert ein Og stjörnurnar kalla á þig Hver fer sína leið og sér um sig Og sér um sig Þú gerir mig vitlausan Og hverfur síðan frá mér Vofa sem ég sé um nótt Endrum og eins yfir árin Ég fraus þegar færi gafst Og týndi mínu hjarta Brá mér frá í andartak Svo flugu burt stundir bjartar Ég brann út á tíma Og drap í þeim glóðum sem þú kveiktir í Reikar þinn hugur stundum til mín? Þegar þú ert ein Og stjörnurnar kalla á þig Hver fer sína leið og sér um sig Og sér um sig