Strákarnir á Borginni hneyksla engan Með förðuð bros þó þeir kyssast og daðri, Labba um með sitt bleika gos, Sitt frosna bros í myrkrinu hvítur farði. Ég er vel upplýstur, veit allt um hommana, Hef lesið bækur, séð kvikmyndir. Það er í lagi með strákana, þeir bera syndirnar í þjóðfélagi sem hatar þá. Sonur minn er enginn hommi, Hann er fullkominn eins og ég. Þó hann máli sig um helgar. Þú veist hvernig tískan er. Strákarnir á Borginni Hittast öll laugardagskvöld á barnum inn í Gylltasal. Því veröldin er köld á tölvuöld þeir labba um með hlýtt fas. Dyraverðir hata þá, hóta að skera undan, steikja og flá. Samt brosa strákarnir og laga á sér hárið. Því sumir eru drottningar Og aðrir eru prinsessur. Sonur minn er enginn hommi, Hann er fullkominn eins og ég. Þó hann máli sig um helgar. Þú veist hvernig tískan er Sonur minn er enginn hommi, Hann er fullkominn eins og ég. Þó hann máli sig um helgar. Þú veist hvernig tískan er Strákarnir á Borginni hneyksla engan Með förðuð bros þó þeir kyssast og daðri, Labba um með sitt bleika gos, Sitt frosna bros í myrkrinu hvítur farði. Ég er vel upplýstur, veit allt um hommana, Hef lesið bækur, séð kvikmyndir. Það er í lagi með strákana, þeir bera syndirnar í þjóðfélagi sem hatar þá. Sonur minn er enginn hommi, Hann er fullkominn eins og ég. Þó hann máli sig um helgar. Þú veist hvernig tískan er. Sonur minn er enginn hommi, Þú veist hvernig tískan er