Í regninu elskendur finnurðu falda Fallandi regnið mun yfir þau tjalda. Hjörtun þau titra, hjörtun þau loga Hjörtun sér fórna undir silfruðum boga. Við þig ég tala meðan tunglið syndir Tekur þín augu sýnir þér myndir. Lífinu myndi ég vissulega voga í von um koss undir silfruðum boga. Eins og hermaður sem finnur að feigðin syngur Að fljúgandi kúlan er hans giftingarhringur. Þá finn ég í brjóstinu bálið loga Bíddu mín í nótt undir silfruðum boga. Dagarnir mínir daufir líða Daprir eftir ástinni þurfum að bíða. Í hjarta mitt sem hamast toga Húmblá augu undir silfruðum boga. Ef í regninu elskendur finnurðu farna Felldu ekki dóminn, allavega ekki þarna. Ef þú aðeins heldur við hjartans loga Mun hamingjan bíða undir silfruðum boga. Ástin undir silfruðum boga bíður Að bros þitt vakni því tíminn líður. Ef regninu kaldar göturnar gengur Gakktu undir bogann og dveldu þar lengur.