Sýndu mér frelsið, flögrandi af ást Falið bak við rimlana þar sálirnar þjást. Og nöfnin sem hjartað hafði löngu gleymt. Haltu fast í drauminn sem þig hafði eitt sinn dreymt. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint. Sýndu mér böðulinn sem blindan hefur reyrt Og boðorðin tíu sem engu geta breytt. Hlustaðu á prestana sem bjóða blóðug svör Brosandi færa þér móðurjörð sem gröf. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint. Sýndu mér mæðurnar sem misst hafa von. Hversu margar aldrei aftur fá að sjá sinn son? Sýndu mér blóðvelli hvar bleyður standa vörð Um beinkrossa og frelsi, að friður ríki á jörð. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint. Sýndu mér gjafirnar sem gefnar voru í trú Að gæfan fylgi barninu, að byssan myndi brú Sem síðan barnið gengi á, brátt færðu að sjá Byssumann á jólatré, þú þarft ekki að hvá. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint. Það fossar blóð í frelsarans slóð En faðir, það er vel meint.