Hrognin eru að koma, gerið kerin klár, Hrognin eru að koma, gerið kerin klár. Setjið dælurnar í samband, takið svo seglin frá Hrognin eru að koma gerið kerin klár. Vinnið nógu mikið, peninga munuð þið fá, Vinnið nógu mikið, svo verki niður í stórutá. Það er hagur þeirra að ykkur flökri þegar hugsun ykkar fer á stjá. Vinnið nógu mikið og peninga munuð þið fá. Uppá verbúð blómstrar menningin, Komið og þið munuð sjá Slagsmál, ríðingar, fyllirí, Jack London horfa á. Engin pólitísk slagyrði, Maó myndir veggjum á þá færðu reisupassann vinur minn, Staðnum verður, staðnum verður frystur frá. Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn, Ykkar er jú hagurinn, hagurinn ekki hússins. Það vita þeir og þjarma á ykkur refsibónusinn, það er, - það er allur munurinn. Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn Stæltur er skrokkur þinn, djöfull sljór hugurinn...