Lífið þeytir mér endalaust Fram og aftur í trylltum blús, Sálarfriðinn ég þægi fús. Efinn liggur sem mara á mér. Tækifærin mér fljúga hjá En ég tek á mér tak Horfi fram á veg. Oh, neistann, nú finn ég neistann þjóta hratt um æðar mér ég er til í hvað sem er. Oh, neistinn, nú finn ég neistann Sem að kippir mér í gír, Sýnir allt sem í mér býr. Minning merlar í huga mér Kallar fram í mér leynda þrá, Ljúfa brosið og augun blá. Töpuð ertu mér alla tíð ég finn hvorki sorg né sút, Heldur brennandi þrá - Boð um betra líf. Oh, neistann, nú finn ég neistann þjóta hratt um æðar mér ég er til í hvað sem er. Oh, neistinn, nú finn ég neistann Sem að kippir mér í gír, Sýnir allt sem í mér býr. Innst í hjarta mér Hrópar rödd á mig Að slökkva á þér Og skipta á aðra rás.