Við erum búin að tala og þegja Við erum búin að lifa og deyja Næstum því, næstum því Við erum búin að neita og játa Og þú ert búin að skáka og máta Mig allt mitt líf, þú mitt víf Allt sem við gerum er sandkorn sem rennur í glas — Tímaglas Allt sem við segjum er dropi í eilífðarþras — Orðabras Eftir lifir smá minning um eitthvað sem var okkar fas Við erum búin að kaupa og selja Við erum búin að hafna og velja Alla tíð, ár og síð Við sitjum hér og látum það vera það er víst ekkert annað að gera Hjá mér og þér Hvort sem er Allt sem við gerum er sandkorn sem rennur í glas — Tímaglas Allt sem við segjum er dropi í eilífðarþras — Orðabras Eftir lifir smá minning um eitthvað sem var okkar fas Allt sem við gerum er sandkorn sem rennur í glas — Tímaglas Allt sem við segjum er dropi í eilífðarþras — Orðabras Allt sem við gerum er sandkorn sem rennur í glas — Tímaglas Eftir lifir smá minning um eitthvað sem var okkar fas