þarna handan við er sitthvað á seyði Segjum eins og er, það er allt í steik Eintóm vandræði á vandræði ofan Vesalingarnir þar týndir í reyk ég prísa mig því sælan Og segi sjálfum mér Að svona lagað gerist ekki hér í fjarska hendur í fjarlægð í friði loka ég augunum það gerist margt en gerist ekki hér Hinumegin við er angist og ótti Illa leikið fólk og frelsinu svipt Menn sem taka völd í myrkursins skjóli á meðan hérna get ég öxlunum yppt ég prísa mig því sælan Og segi sjálfum mér Að svona lagað gerist ekki hér í fjarska hendur í fjarlægð í friði loka ég augunum það gerist margt en gerist ekki hér Mig langar ekkert að vakna Einn daginn upp við vondan draum það gerist aldrei hérna, eða hvað? Mig langar ekkert að vakna Einn daginn upp við vondan draum það gerist aldrei hérna, eða hvað? Mig langar ekkert að vakna Einn daginn upp við vondan draum það gerist aldrei hérna, eða hvað? Mig langar ekkert að vakna Mig langar ekkert að vakna Mig langar ekkert að vakna