Það rofar til inni' í mér Og lífið tekur lit. Veit nú hvað gefur mér mest Og tilverunni glit. Aldrei var sólin svo skær Né fugla fegurri hljóð. Mér finnst ég skilja í dag öll heimsins ástarljóð. Þú fullkomnar mig, ég finn að ég er annar en ég var. Þú ert við spurnum mínum lokasvar, þú lyftir mér upp, lýsir mér leið. Ég vegsama þig Og vonir mínar bind ég aðeins þér. Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér í huga og hér, ævinnar skeið. Liðið er grafið og gleymt Og raunir frá í gær. Loksins ég veit upp á hár Hvað hjartað í mér slær. Og þó að ég ferðist um lönd þú ert mín heimahöfn. Norðljósin skrifa í kvöld í hvolfið okkar nöfn. Þú fullkomnar mig, ég finn að ég er annar en ég var. Þú ert við spurnum mínum lokasvar, þú lyftir mér upp, lýsir mér leið. Ég vegsama þig Og vonir mínar bind ég aðeins þér. Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér í huga og hér, ævinnar skeið. Aldrei var sólin svo skær Né fugla fegurri hljóð. Mér finnst ég skilja í dag öll heimsins ástarljóð.