Flæði Einskonar æði Líkt og mér blæði — En þó engin und Tregi ég tala en þegi Að nóttu og degi — ég vart festi blund Og hún opnar í hjarta mér gáttir Verður þess valdandi að maður missir áttir Hún er ókunn mér sú tilhneiging þetta er ólýsanleg tilfinning Straumur öflugur flaumur Minn stóri draumur — Fundin mín fjöl Gjafir Líkt og mér hafi Tekist úr kafi — Að komast á kjöl Og hún opnar í hjarta mér gáttir Verður þess valdandi að maður missir áttir Og hún vekur í huganum neista Lyftir mér upp án þess að hafa hugmynd um það Hún er ókunn mér sú tilhneiging Harla ólíkt því sem var þetta er undursamleg tilfinning Ef þú brosir nú við mér Mun ég margfallt launa þér Viltu brosa sól við mér? ég mun endurgjalda þér Brostu sól, brostu sól Ef þú brosir nú við mér Viltu sól, viltu brosa? ég mun endurgjalda þér (Endurgjalda þér)