Hvað olli því að allt Er algjörlega á svig Við það sem kenndi ég? Hvað kemur yfir mig? í huldu þennan heim ég hélt með góðum hug Svo kraftmikill og ör En kemst nú ekki á flug Draumur engils er úti En um leið Annar draumur rétt að hefjast Sól, ég er ólgandi inní mér Erfitt að útskýra það Og það er vonlegt að þér verði ekki um sel Sól, ég hef sögu að segja þér Sagan fór illa af stað En ég er viss um að hún endar nokkuð vel það vildi þannig til Að þú varst hér og nú ég leitaði mér skjóls Og skjólið það varst þú ég viðurkenni að víst það virðist ótrúlegt Að hafa þvílík völd En geta lítið gert Finndu mig, ég er alveg eins og þú Snertu mig, ég er holdi klæddur Sól, ég er ólgandi inní mér Erfitt að útskýra það Og það er vonlegt að þér verði ekki um sel Sól, ég hef sögu að segja þér Sagan fór illa af stað En ég er viss um að hún endar nokkuð vel Ef til vill var það lán að lenda hér Illu heilli ég hafnaði hjá þér ó, sem betur fer Sól, ég er ólgandi inní mér Erfitt að útskýra það Og það er vonlegt að þér verði ekki um sel, já Sól, ég hef sögu að segja þér Sagan fór illa af stað En ég er viss um að hún endar nokkuð vel En þetta mun enda vel Sagan mun enda vel, já þetta mun enda vel Sagan mun enda vel