Skuggar í skjóli nætur Skjóta rótum sínum hér. Farði og fjaðrahamur, Allt svo framandi er. Fyrirheit enginn á Aðeins von eða þrá, Svo á morgun er allt liðið hjá. ♪ Sviti og sætur ilmur Saman renna hér í eitt. Skyrta úr leðurlíki Getur lífinu breytt. Fyirheit enginn á Aðeins von eða þrá Tíminn fellur í gleymskunnar dá. Fyrirheit enginn á Aðeins drauma og þrá Svo á morgun er allt liðið hjá. Hérna er allt sem hugurinn gæti girnst Já og eðal guðaveigar. Nóttin er ung Og hún iðar í takt við þig. Allt getur gerst Og eflaust gerist það víst Bara bruggið ef þú teygar. Svo er svifið þöndum vængjum Svo er svifið þöndum vængjum. Sódóma, jeee Sódóma, jeee ♪ Holdið er hlaðið orku Hafið yfir þína sýn. Drjúpa af dimmum veggjum Fleiri vessar og vín. Fyrirheit enginn á Aðeins von eða þrá Lífið fellur í gleymskunnar dá Fyrirheit enginn á Aðeins drauma og þrá Svo á morgun er allt liðið hjá.