þó ég segi frekar fátt Virðist hafa lítinn mátt Engan bilbug samt á mér er að finna Og þó ég brynni stöku mús Kneyfi ölið helst til fús þá er fráleitt svo að ég sjá eftir nokkru hér það amar ekkert að ég get svo svarið það Hún veldur mér engu hugarangri ég þekki ekki eymd Hún er mér alveg gleymd Og veldur mér engu hugarangri þó ég geymi myndagnótt Fletti í þeim fram á nótt Og mæli nafnið hennar ótt Upp úr svefni þá ég vísa því á bug Hverjum dettur það í hug Að ég sakni hennar hót það er lítil sárabót það amar ekkert að ég get svo svarið það Hún veldur mér engu hugarangri ég þekki ekki eymd Hún er mér alveg gleymd Og veldur mér engu hugarangri þó ég spyrjist fyrir þó ég fylgist með því sem aðrir hafa kannski heyrt og séð þá er af og frá að mér finnist Nokkuð um það það amar ekkert að ég get svo svarið það Hún veldur mér engu hugarangri ég þekki ekki eymd Hún alveg mér er gleymd Og veldur mér engu hugarangri það amar ekkert að ég get svo svarið það (Engu hugarangri) ég þekki ekki eymd Hún alveg mér er gleymd Og veldur mér miklu hugarangri Eða kannski stundum, jú ég neita því ekki