Enginn verður óbarinn biskup – eða hvað? Ertu eitthvað aumur? Ó amar eitthvað að? Ó ó, Liggur undir feldi í nótt. Liggur bara og talar, En lætur ekki neitt. Hvenær ertu til fyrir mig? Hvurslags eiginlega, Hvaða brögðum get ég beitt? "Enginn verður óbarinn biskup", segir þú. "Enginn nær í rekkjunaut eftir klukkan þrjú". Ó nei. Auður er undarleg. Svo er nú það. Sendu henni línu ef eitthvað er að. Alltaf er Auður á undan með flest. Reyndu ekki að setjast á of háan hest, því hún sér við þér. Reyndu ekki að mæla undir rós. áhh Reyndu ekki að rengja það sem Auður leggur til. Sjá – og þú munt halda það út. Og seinna færðu sannreynt Að það verður þér í vil. "Enginn verður óbarinn biskup", segir hún. "Enginn reisir fangelsismúr úr æðadún". Auður er undarleg. Svo er nú það. Sendu henni línu ef eitthvað er að. Alltaf er Auður á undan með flest. Reyndu ekki að setjast á of háan hest, því hún sér við þér.