Lífið er ljóð sem stundum rímar En stundum óræð orðafjöld Orfáir, kannski, klukkutímar En sumir tóra þó í heila öld Makleg er'ekk'alltaf málagjöld það syngur hver með sínu nefi Hver hefur hér sinn eiginn sið Einn daginn erum við á uppleið þann næsta liggur leiðin niðrávið þannig ferðumst við um þetta svið í stormum ávallt sigla sumir En aðrir æ á sléttum sjó þannig er lífið Já, þannig er nú lífið Fráleitt alltaf einfalt þó er vert að lifa því þannig er nú það Eitt líf er kröftug sinfónía Annað er lágstemmt lítið stef Og sumir hugsa alla ævi Um það sem miður fór og segja ef ég bara hefði stigið önnur skref Niður og upp um stigahringinn þar gerist margt á langri leið Svona er lífið Já, svo er nú lífið Fráleitt alltaf einfalt þó er vert að lifa því þannig er lífið Já, þannig er nú lífið Fráleitt alltaf sanngjarnt Ekki alltaf þægilegt Ekki slétt og fellt Já þannig er nú það þrepin eru mörg og margur maðurinn á erfitt með að halda dampi yfirleitt Tíðin stundum köld og margur dagurinn Er þrautarganga nánast alveg útí eitt En stundum gerast pínulítil kraftaverk Sem vega upp á móti vonbrigðum það má alltaf leita uppi jákvæð svör Og ævintýr á lífsins gönguför Upp og niður stigann Upp og niður stigann Upp og niður stigann Upp og niður stigann Upp og niður stigann Upp og niður stigann Upp og niður stigann Upp og niður stigann