Kishore Kumar Hits

Sálin hans Jóns míns - Það amar ekkert að şarkı sözleri

Sanatçı: Sálin hans Jóns míns

albüm: Glamr


þó ég segi frekar fátt
Virðist hafa lítinn mátt
Engan bilbug samt á mér er að finna
Og þó ég brynni stöku mús
Kneyfi ölið helst til fús
þá er fráleitt svo að ég sjá eftir nokkru hér
það amar ekkert að
ég get svo svarið það
Hún veldur mér engu hugarangri
ég þekki ekki eymd
Hún er mér alveg gleymd
Og veldur mér engu hugarangri
þó ég geymi myndagnótt
Fletti í þeim fram á nótt
Og mæli nafnið hennar ótt
Upp úr svefni
þá ég vísa því á bug
Hverjum dettur það í hug
Að ég sakni hennar hót
það er lítil sárabót
það amar ekkert að
ég get svo svarið það
Hún veldur mér engu hugarangri
ég þekki ekki eymd
Hún er mér alveg gleymd
Og veldur mér engu hugarangri
þó ég spyrjist fyrir
þó ég fylgist með
því sem aðrir hafa kannski heyrt og séð
þá er af og frá að mér finnist
Nokkuð um það
það amar ekkert að
ég get svo svarið það
Hún veldur mér engu hugarangri
ég þekki ekki eymd
Hún alveg mér er gleymd
Og veldur mér engu hugarangri
það amar ekkert að
ég get svo svarið það
(Engu hugarangri)
ég þekki ekki eymd
Hún alveg mér er gleymd
Og veldur mér miklu hugarangri
Eða kannski stundum, jú
ég neita því ekki

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar