Hér er texti fyrir lagið: Krummi svaf í klettagjá, Kaldri vetrarnóttu á, :: verður margt að meini:: Fyrr en dagur fagur rann, Freðið nefið dregur hann :: undan stórum steini.:: Allt er frosið úti gor, Ekkert fæst við ströndu mor :: svengd er metti mína.:: Ef að húsum heim ég fer Heimafrakkur bannar mér :: seppi' úr sorp að tína.:: Á sér krummi ýfði stél, Einnig brýndi gogginn vel, :: flaug úr fjallagjótum:: Lítur yfir byggð og bú á bænum fyrr en vakna hjú, :: veifar vængjum skjótum.:: Sálaður á síðu lá Sauður feitur garði hjá, :: fyrrum frár á velli.:: Krunk, krunk, nafnar, komið hér, Krunk, krunk, því oss búin er :: krás á köldu svelli.::