Hún amma mín það sagði mér "Um sólarlagsbil Á sunnudögum gakk þú ei Kirkjuhvolls til Þú mátt ei trufla aftansöng Álfanna þar Þeir eiga kirkju í hvolnum Og barn er ég var Í hvolnum kvað við samhljómur (Bimm, bamm) Klukknanna á kvöldin (Bimm, bamm) Hún trúði þessu hún amma mín Ég efaði ei það Að allt það væri rétt er Hún sagði um þann stað Ég leit því jafnan hvolsins Með lotningu til Ég lék mér ei þar nærri Um sólarlagsbil Ég þóttist heyra samhljóminn (Bimm, bamm) Klukknanna á kvöldin (Bimm, bamm)