Átján rauðar rósir eru hér, Átján rauðar rósir ætlaðar þér. Til dyranna ég fór og sendill mætti mér Með átján rauðar rósir handa þér. Á kortið ég leit og lostinn furðu ég var, Er las ég þau orð er árituð voru þar. Þótt öðrum sértu ætluð, mín ást er sönn á þér Já átján rauðar rósir komu hér. Og ég sem hélt að þú ynnir mér einum, Og hefðir alla tíð verið trú. En ævintýri þú áttir í leynum þess bera átján rósir vitni nú. Nei eitthvað stendur enn á kortinu hér ég ætlaði vina mín bara að segja þér. Að átján rauðar rósir þær fölna og falla um síð En mín föðurást hún varir alla tíð.