Ég er bara lítill strákur og ég stika yfir holtið Og ég stefni niðrá Skalla að finna gengið mitt með soltið Af brennsa til að hafna útí Hljómskálagarði í restina Hátt uppí vornóttinni dauðinn og djeilið reka svo lestina ó Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn Og við flugskýlin útí Skerjafirði er Sirkus Zoo með tjöldin þar má sjá bæði fíla og apa og ljón og jafnvel línudansara á kvöldin Og í Vatnsmýrinni þar er tívolí og það kostar krónu inn Eða kanski maður reyni að svindla sér nei hann drepur okkur vörðurinn Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn Það er kortérsgangur úr Norðurmýri og niðrá Lækjartorg Annars nær maður bara leið eitt til að komast á rúntinn eða Hótel Borg Ef ekki býðst neitt partí eftir ballið er allavega hægt um vik Að eigra út á Seltjarnarnes og drekkja sér í sjónum augnablik ó Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn Og s_____rgin uppí Öskjuhlíðinni þau heilla lítinn snáða Við höldum til á bannsvæðunum og þar væri helst að fá það En í skýli við flugvallarveginn er svo löggan í leyni þeir sem lenda í henni eru skrifaðir upp og flengdir og steiktir á teini ó Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn Og þeir búa sig út og versla sér þrjár og fjórar flöskur Eða kanski fimm og vefja í teppi og pakka svo niðurí skólatöskur Og keyra útá vegina og veifa þar í blænum það er verslunarmannahelgin og maður rolast einn í bænum Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn Það er einhver úti nóttinni sem gröfina sína grefur Og götuljósin þau vaka meðan borgin hún sefur Og tárin streyma ég er bara fremur tuskulegur lítill drengur ég hef týnt mér útí bæ og ég finn mig ekki lengur Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn Og rónarnir eru skammt undan að rónast nú og þá Eftir Rauðarárstíg kemur Svarta María með sírenurnar á ég stend við gluggann og horfi á þá hirta upp lítill og mjór Og ég hugsa með mér: vá svona vill ég verða þegar ég er orðinn stór Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn Það er ekki von að vel fari hjá fyrstu kynslóð á mölinni Hún fríkar út valkostunum og sekkur til botns í kvölinni ég er aðeins lítill strákur kominn lengst útí geim Og ég leita í örvæntingu en ég finna bara ekki leiðina heim Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur ó Reykjavíkurnætur Reykjavíkurnætur í denn