Þétt mér við hlið, situr Heiða en við Höfum ei meira að segja Við höfum þann sið, að við sitjum í bið Yfir sorgum er best að þegja Það var ekki neitt eitt, sem að öllu fékk breytt Ekkert sem hægt er að telja Þykir mér það víst leitt, en allt sem ég get veitt Er víst til að han a kvelja Og nú fall'af trjánum blöð Og þau föla mynda tröð Sem ég feta svo burt frá þér Það er aftur komið haust, þó ennþá blási vindar laust Og þú ert ekki lengur hér Þú veist hvað ég vil - ef þú vilt finna yl Vertu þá ekki að hringja Því ég á ekkert til, og ég ekkert nú skil Við skulum ei sporin mín þyngja Ó Heiða var mér flóð og fjara Við fegurst vorum meðal para En hún var lygin, sönn og köld og hlý Já hún var mér allt, og engin orð eru nógu Þó er eitt sem er vel, og það aldrei ég fel Og enginn því frá mér stelur Ég á frjálst hugarþel og þar minningu el Og ákveðin stúlka þar dvelur Og nú fall'af trjánum blöð Og þau föla mynda tröð Sem ég feta svo burt frá þér Það er aftur komið haust þó ennþá blási vindar laust Og enn geng ég burt frá þér Og þó þú sért ei lengur mín Og engin ábyrgð sé víst þín þá er ég að tapa mér