Langt liggur slóð þín Dóttir mín góð Um fjöll og um dali Fjarlægt land Þar sem ég áður Reikaði þjáður Leitandi skjóls um eyðisand Reikaði einn um eyðisand Liggi þín leið um Lágský á heiðum Þokuna glæðir mánans skin Spor mín í sandi Sífelldur vandi Láttu þau hverfa í hyldýpin Hverfa í kolmyrk hugdjúpin Finn þína eigin slóð Fegurri verður leiðin þín Far þína eigin slóð Fetaðu ekki í förin mín Forðastu, dóttir, fótspor mín Stundum ekkert sést Hvorki fjöll né firðir Þá auðnin er alger Allt er týnt Ekki glata voninni Barnið mitt Höfuðið berðu Hátt og þá sérðu Allt sem var hulið þinni sýn Þá sérhver hríð Mun reynast þér blíð Og áður en varir sólin skín Senn mun hún verma sporin þín