Engir stormar í nótt hafa að mér sótt Aldrei þessu vant Ég hef gengið á skjön, allt mitt líf og plön Liggja upp á kant Og þó ég geti stundum reynt, að sigla í lífinu beint Sækir óreiðan að Fyllir hugann af hríð heimsins harða tíð Finn engan felustað Fæ ég í dag kannski stundarfrið? Finn ég á þessum stað tímabundin grið, Eitt andartak Ég hef hrakist um haf, sokkið á bólakaf Siglt hjarta mínu í strand Komist aftur á flot, fengið á sálina brot Ekki ratað í land Og þó að stundum virðist ró, illa gengur þó Að lægja öldurnar Samt þá tilhugsun tel, að tímans stytti upp él Mér til lífsbjargar Fæ ég í dag kannski stundarfrið Finn ég á þessum stað tímabundin grið, Eitt andartak Fæ ég í dag kannski stundarfrið? Finn ég á þessum stað tímabundin grið? Gæti ég í smá stund, verið eins og þið? Eitt andartak, eitt andartak Eitt andartak