Sumarið kvatt, sem aldrei kom Og haustið, svo traust, í hlaðið reið Settlega svæfði alla von Um sólríka daga og kvöldin heið Um sólríka daga og kvöldin heið Skýin nú hörfa stundarbil Og sólin loks í hæðni skín Fuglar í nótt fá sjónarspil Á flugi þúsund trampólín Þeytast hjá þúsund trampólín Þungir vindar blása Þvert á alla ása Jólatré fjúka um götur hér og þar Vonum feykt af stalli Vanrækt grill á palli Minnir á ótal brostnar væntingar Kaldar lengjast nætur Kaldir, blautir fætur Rignir nú strítt á okkar stirða geð Ljós í regni glansa Lauf í vindi dansa Ekkert í boði nema dansa með Haustvindar, haustvindar Takið mig með, takið mig með!