Ég veit ekki hvað það er Sem ég finn, er ég horfi á þig. Einhver ókunnug tilfinning læðist inn Og gagntekur mig. Og ég heyri þig syngja Og ég heyri þitt lag. Og hverjum hefði getað dottið í hug Að ég myndi finna þig á þessum stað, á brennipunkti minna minninga? Að sálir sem týnast og troðast í svað, Rati aftur heilar heim í hlað? Og þegar við kysstumst Var eins og tíminn stæði kyrr. En svo tók hann á stökk Og stundirnar þutu sem aldrei fyrr. Og ég heyri þig syngja Og ég heyri þitt lag.