Myrkrið gleypir allt En undir snjó með rammri kaldri ró Rumskar Janúar Rymur hljótt og gyrðir sig í brók Ýfða yglir brá Augun pírð í átt að kaldri sól "Þessi fjandi dugar skammt Hún liggur flöt en skal á loft" Ó Janúar, sem enginn ann Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf? Sólin rís með hægð En bak við tjöldin böðlast janúar Eins og rótari Eða ruslakall á mánudagsmorgni Ó Janúar, sem enginn ann Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf? Og eftir allt sem hann gaf Janúar skríður aftur undir feld Þar til skyldan kallar enn á ný Eins og snævi þakinn Batman Ó Janúar, sem enginn ann Hve dýrðlegt er þitt vanþakkláta starf? Ég sé þig Janúar, ég man þig Janúar Sólin rís með hægð, í Janúar Myrkrið gleypir allt, í Janúar Eins og snævi þakinn Batman