Hvíldu hjarta. Húmblíð nóttin hefur fold í faðmi sveipt, Mildir geislar mánans hafa Munarslæðum dalinn reift. Bládögg vafin blómin hvíla, Blundar fugl í kvisti vær. Sofðu einnig, órótt hjarta, Allt er þögult fjær og nær. Hvíldu, hjarta, hvíldu. Hvíldu, hjarta. Sjá hve fljótið silfurlygna sveimar hljótt út í hafið ógnardjúpa Er því vaggar hægt og rótt. Lát þú einnig, ljúfa hjarta, Ljósa drauma bera þig Burt frá sorg og burt frá kvíða, Burt frá vöku þyrnistig. Hvíldu, hjarta, hvíldu. Hvíldu, hjarta. Svefnsins andi líður yfir lög og strönd; Gleymskan vefur vængjum dökkum Von og sorg í þreyttri önd. Gleymdu, gleymdu, hrygga hjarta, Hvíldu, sofðu, dreymdu rótt! Eins og barn að brjósti mildu Byrgir þig hin trygga nótt. Hvíldu, hjarta, hvíldu.