Þú tæmdir allt þitt traust á mér Þó tórir enn mín ást á þér Sagan endar allt of skjótt Þú bauðst mér aldrei góða nótt Svikin voru silkimjúk Sængin tóm og vænisjúk Í þögn þú komst og þögul út Þú þræddir veginn niðurlút Grá ský eru gráti nær Þig dreymi ég nú angurvær Í minninganna vígðu borg Í mæðu feta hulin torg Mig óraði ekki fyrir því Að aldrei sæjumst við á ný Mig óraði ekki fyrir því Að aldrei sæjumst við á ný Mig óraði ekki fyrir því Að aldrei sæjumst við á ný