Kishore Kumar Hits

Carpe Noctem - Hér hvílir bölvun şarkı sözleri

Sanatçı: Carpe Noctem

albüm: Vitrun


Svartir drangar stjaksetja jörðina
Naglar í líkkistu guðanna
Hér finnst ekkert mikilsvert
Engar dáðir voru framdar hér
Hér hvílir bölvun
Sem var óstöðvandi fárviðri
á okkar tímum
Hér jörðuðum við frumsyndina,
Vöggugjöf erfingjanna
Þetta er ekki griðastaður
þetta er ekki helgidómur
Lát kyrrt liggja!
Forðastu þennan stað!
Máðu grafhýsið úr huga þínum!
Þessi staður er prísund
Haugur smánarinnar
Og höfum við andúð á honum
Þessi staður er lykill
Aðeins einn af mörgum
En hann opnar engar gættir
Hér liggur engilinn
Og spinnur sér nýja vængi
úr óráðsdraumum sem leka
úr eyrum dreymandans
Varastu ásjónu hans!
Forðastu grafhýsi hans!
Nafn hans er fordæming
Og ásjóna hans er sjúkdómur
Innsigli engilsins er viðvörun
Hendur hans móta hold sem leir
Augu hans brenna
Með huldum loga
Hann er ljós sem upplýsir ekki
Og bál sem brennur án hita
Spjótið sem banaði drekanum
Og vínið sem ærði spámanninn
Eitt sinn var veldi
Sem brann um stutta stund
Og hélt að turnar sínir myndu standa um ókomna tíð
Arfleifð okkar er glóð
Dreifð í vindinum
Minning okkar
Er linnulaus martröð
Þannig lát kyrrt liggja!
Láttu glóðina kulna!
Forðastu svörtu drangana!

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar