Kishore Kumar Hits

Carpe Noctem - Upplausn şarkı sözleri

Sanatçı: Carpe Noctem

albüm: Vitrun


Sprungið malbik
Hrími þakið
Kyrr vetrarnótt
þögninni raskað
Flöktandi lampar
Kasta stjörnum á götuna
Tjörusvartur himininn kraumar
Á hægri hönd er kyrrlátt þorpið sem ól mig
Til vinstri, mosavaxið hraunið
Fram renna skuggar
Sem elta bráð
Til þess eins að finna hjartað slá
Þeir líða á milli yfirgefinna húsa
Og hörfa þegar rödd
Berst úr hrauninu
Andlitið mosagróið og máð
Næstum kunnuglegt
Svo mælir steinninn
í miðri auðninni
Svo mælir steinninn
En ekki greinist orða skil
þegar regnið byrjar að falla
"Sá sem útbýr hreiður
Mun yfirgefa það
Sá sem græðir jörð
Mun brenna hana"
Stefnulausar götur
Auðar og sprungnar
Munu ekki leiða neinn
Til betrunar
Þykkri eðju rignir niður
Sem terpentína á málverk
úr húsunum skríður fólk
Og dansar
Þau baða út örmunum
Breiða úr fálmurum
Teygja úr vængjunum
Og fagna upplausninni
"Sá sem útbýr hreiður
Mun yfirgefa það
Sá sem græðir jörð
Mun brenna hana
Sá sem elur fé
Mun svelta það
Sá sem grefur brunn
Mun eitra hann"
Hold mun visna
Sýn mun fjara
Vit mun þverra
Bein munu molna
Eftir stendur
Berstrípað hraunið
Og stjörnurnar á götunni

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar