Hin eilífa barátta lífs við hnignun Hin eilífa barátta við óreiðu Eðlis okkar tilveru Ör tímans Kviku sýnir enga miskunn Himnarnir standa ekki í stað Án afláts - breytast stöðugt Eins og örskotsstundin sem líf okkar er Sjóndeildarhringurinn málaður rauður Alheimurinn sogar mig Inn í óravíddir óendanleikans Og spýtir mér út, nöktum Innan um geisla kulnaðrar sólar Þar sem ekkert þrífst Og óreiða ríkir