Mér líkar svo vel að lifa Þó læðist sú hugsun að mér Að ekki muni hún endast Til eilífðar vistin mín hér Ekki veit ég samt ennþá Hvað af henni tekur við Kannski andast ég inn á Annað tilverusvið Enn syngur áttræður Unglingur síglaður Ljóð sín í léttum dúr Leikinn sem trúbadúr Það væri fýsilegt framhald En fari nú svo er ég dey Að sálin með holdinu sundrist Mér sýnist það líka OK