Og sama hvað amaði að þarna þegar við kvöddumst Klæðir sólskinið þig sífellt betur. Dokum hér við Meðan dagsbirtan endist Og sjáum hvað setur. Því er erfitt að trúa Að við sátum hér síðast í haust. Núna hangir sólin á fótum Að því er virðist endalaust. Sólþyrstir stúdentar, Kappklæddir túristar, Heilsast á vegi förnum. Nýkeyptir íspinnar Svitna og örvænta Og etast af þybbnum börnum. Og sama hvað amaði að þarna þegar við kvöddumst Klæðir sólskinið þig sífellt betur. Dokum hér við Meðan dagsbirtan endist Og sjáum hvað setur. Því er erfitt að gleyma Sem gerðist hér síðasta haust. Er það nema von Er það nema von Að ég tali svolítið samhengislaust? Og sama hvað amaði að þarna þegar við kvöddumst Klæðir sólskinið þig sífellt betur. Dokum hér við Meðan dagsbirtan endist Og sjáum hvað setur. Miðbæjarmömmurnar Dröslast með kerrurnar Daglangt og dreypa á mokka. Prúðbúnir mormónar, þræðandi göturnar, Bjóða af sér góðan þokka. Og sama hvað amaði að þarna þegar við kvöddumst Klæðir sólskinið þig sífellt betur. Dokum hér við Meðan dagsbirtan endist Og sjáum hvað setur. Dokum hér við Meðan dagsbirtan endist.