Neyðir sig í tré Nývaknaður þröstur upp á háa C Og heldur því Þegar bærinn er Enn að klára úr fyrsta bolla Og teygja úr sér Legg ég hann í Úti sækir mannmergðin að mér Rétt eins og háflóðið að auðri strönd Og ég sé að eins og gengur Ferðast sumir einir Aðrir hönd í hönd Kvölds ég bregð mér frá Skottast kannski út Og jafnvel fæ mér smá í tá (Jájá það má) það má Úti sækir mannmergðin að mér Rétt eins og háflóðið að auðri strönd Og ég sé að eins og gengur Ferðast sumir einir Aðrir hönd í hönd Og þó að það sé sárt þá fer ég ekki af því Að eina hönd sé umfram aðrar Gott að halda í En þegar sólin sest Geri ég það sem ég geri manna best (Horfi á Lé, á DVD, Bara ég og Olivier) Úti sækir mannmergðin að mér Rétt eins og háflóðið að auðri strönd Og ég sé að eins og gengur Ferðast sumir einir Aðrir hönd í hönd Undanfarið ertu furðu fátíð Er fáni okkar hífður hálfvegis að húni? Þarf ég þá að hugsa bara um þig í þátíð? Eins og næturvaktin í Nóatúni Hví ertu svona fjarska fátíð? Er fáni okkar hífður hálfvegis að húni? Þarf ég þá að hugsa bara um þig í þátíð? Eins og næturvaktin í Nóatúni Undanfarið ertu furðu fátíð Er fáni okkar hífður hálfvegis að húni? Þarf ég þá að hugsa bara um þig í þátíð? Eins og næturvaktin í Nóatúni