Blika stjörnur, bast og tvist. Urtubarn í útskersvist Er að lognast útaf, Og ég hafa það vil sem það hefur, því það er, eins og er, Ekki snefill af mér Sem að sefur. Þér, sem einnig liggur hér, Vinnst létt að sofa; áir sátt í örmum mér ásamt náladofa. Ég er bit yfir því Hve þú talblöðruna í Getur Teiknað zetur! Og ég hafa það vil sem þú hefur, því það er, eins og er, Ekki snefill af mér Sem að sefur. Já, ég hafa það vil sem þú hefur. Að ég einn og aukreitis Norpi í vökuheimi þýðir ekki aldeilis Að mig ekki dreymi. Nei, ég hafa það vil sem þú hefur, því það er, eins og er, Ekki snefill af mér sem að sefur.