Þótt ég sigli um sjá, þótt ég slái með ljá, þótt allt sé á tjá og tundri, þá ég ánægju á, ást og hamingju þrá. Ljúft er lífið mér hjá - rétt og slétt. Ég veit að lífið fékk ég til að geta lifað því. Ég ætl' að lifa bara eins og sýnist Mér. Margir kvarta og kveina En ef kanski þeir reyna, þá er lífið létt. Sjaldan aura ég sé. Sama er mér um fé. Já það má jafnvel ske þig undri. Latur lifa ég vil. Allt sem mig langar til Gerir ég - hér um bil, það er rétt. Og minni ánægju lífið enginn bifar, því ég er svo alsæll með það alveg núna Eins og er. Margir kvarta og kveina En ef kanski þeir reyna, þá er lífið létt. Við lífsglaða tísku Mér líkar best. Græðgi og nísku ég forðast mest. Þótt ég sigli með sjá, þótt ég slái með ljá, þó að allt sé á tjá og tundri, þá ég ánægju á, ást og hamingjuþrá. Ljúf er lífið mér hjá- rétt og slétt. Ég veit að lífið fékk ég til að geta lifað því. Ég ætl' að lifa bara eins sýnist Mér. Margir kvarta og kveina, En ef kanski þeir reyna, þá er lífið létt.