Kishore Kumar Hits

Savanna tríóið - Þorraþræll şarkı sözleri

Sanatçı: Savanna tríóið

albüm: Það er svo margt...


Nú er frost á Fróni
Frýs í æðum blóð
Kveður kuldaljóð
Kári í jötunmóð
Yfir laxalóni
Liggur klakaþil
Hlær við hríðarbyl
Hamragil
Mararbára blá
Brotnar þung og há
Unnarsteinum á
Yggld og grett á brá
Yfir aflatjóni
Æðrast skipstjórinn
Harmar hlutinn sinn
Hásetinn
Horfir á heyjaforðann
Hryggur búandinn:
"Minnkar stabbinn minn
Magnast harðindin"
Nú er hann enn á norðan
Næðir kuldaél
Yfir móa og mel
Myrkt sem hel
Bóndans býli á
Björtum þeytir snjá
Hjúin döpur hjá
Honum sitja þá
Hvítleit hringaskorðan
Huggar manninn trautt
Brátt er búrið autt
Búið snautt
Þögull Þorri heyrir
Þetta harmakvein
Gefur grið ei nein
Glíkur hörðum stein
Engri skepnu eirir
Alla fjær og nær
Kuldaklónum slær
Og kalt við hlær:
"Bóndi minn, þitt bú
Betur stunda þú
Hugarhrelling sú
Er hart þér þjakar nú
Þá mun hverfa, en fleiri
Höpp þér falla í skaut
Senn er sigruð þraut
Ég svíf á braut"

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar