Varðst á mínum vegi, þegar mest á reið. Augna minna sjáaldur og sjáandi um leið. Lofa þann dag við fundumst, þú ert allt það sem ég vil. Ó hvílíkt frelsi að elska þig. Allt sem ég hef óttast, tilgangslaust í dag. Þráin orðin sterkari en hræðslan við það að geta glaðst og grátið og það gerir ekkert til. Ó hvílíkt frelsi að elska þig. Þó að útaf bregði, þú ert hjá mér enn. Ég get verið meistari og kjáni í senn. Þú gefur allt til baka og svo miklu meira til. Ó hvílíkt frelsi að elska þig. Kyrrðin færist yfir, gleymi sjálfum mér. Tíminn sýnir vanmátt sinn við hliðina á þér. Það er svo ljóst og auðheyrt þú ert allt það sem ég vil. Ó hvílíkt frelsi að elska þig.