Ævinlega, Sé að þið rákust á tryggan ráðsmann minn. Hann er svo styggur þessi gikkur því í staðinn fyrir ykkur Vildi hann hitta stuðmanninn. Hlaupið ekki í hnút, þótt ég líti svona út, Bókin er oft betri en spjöldin. Mín karlmennska dvín, Meðan dagsljósið skín, En ég er þrælgóður elskhugi á kvöldin. Ég er töff og taumlaus transi, Frá kynfráu Transylvaníu. Leyf mér að bjóða ykkur inn Og kannski tónlist um sinn. Þið virðist bæði geðþekk og glaðlynd. Nú ef þið viljið það sjónrænt En ekki of siðrænt. Gætum við litið á gamla Steve Reeves mynd. Það var gott að hitta á þig hér. Gætum við fengið að hringja hjá þér? Í skyndi ef þér væri sama. Það verður örstutt, Svo förum við burt, Við viljum síst verða til ama. Svo dekkið þitt sprakk Og þú átt engan tjakk En greyin mín, ekki þennan flýti. Því gott miðnæturblót Er meinanna bót Og ég sendi ykkur vélsmið úr víti. Ég er töff og taumlaus transi, Frá kynfráu Transylvaníu. Þið gætuð gist hér í nótt Og gert eitthvað ljótt Og séð þráhyggjuverk mitt í þróun. Ég er að búa til karlmann, Bæði stóran og stæltan, Sem kynni að vera mér fróun. Ég er töff og þröngur transi, Frá kynfráu Transylvaníu. Ég er töff og taumlaus transi, Frá kynfráu Transylvaníu. Sjáum hvað tilraunastofan Geymir hér fyrir ofan. Þennan tilhlökkunartitring ég þekki. Nema rigning og rok Séu svona þungbært ok, þá afnem ég okið en einkennin ekki.