Kishore Kumar Hits

Sigríður Thorlacius - Undir Stórasteini (Live) şarkı sözleri

Sanatçı: Sigríður Thorlacius

albüm: ...ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands (Live)


Það var eitt sinn ógnarlítið stelpuhró
Sem fór oft með mér fram að sjó.
Hún var klædd í ullarpeysu oná tær
Með freknótt nef og fléttur tvær.
Saman tvö í fjörunni við undum okkur vel
Meðan kollan var að kafa eftir kuðungi og skel.
Og á kvöldin, þegar sólin sigin var,
Sátum við í næði bæði undir Stórasteini
Þar sem hún í leyni
Lagði vanga sinn
Ósköp feimin uppvið vanga minn.
Síðan hef ég konur séð í Kaíró
Á Mandalay, í Mexíkó;
Líka þær sem Kyrrahafið kafa í
Og eiga heima á Hava-í.
Sumar klæddust híalíni þegar þeim var heitt
En aðrar bara klæddust ekki
Yfirleitt- í neitt.
Alltaf samt í huga mér og hjarta bjó
Hún sem klædd í ullarpeysu undir Stórasteini
Forðum tíð í leyni
Lagði vanga sinn
Ósköp feimin uppvið vanga minn.
(?)

Поcмотреть все песни артиста

Sanatçının diğer albümleri

Benzer Sanatçılar