Það eru haldnir fundir Gamlar hrukkur sléttar Til að sýna fórnfúsar lundir Í þágu evrópskar stéttar Það er talað um frið Friðarhreyfinginn er við Þriðji heimurinn uppsker sem hann sáir Hann brennur í afskiptalausu báli Það er talað um að þriðja styrjöldin byrji Þá verði algjör endalok Er það von þá menn spyrji Með lygina upp í kok Heimsstyrjöldin tók aldrei enda Hún færði sig lítið eitt um set Þriðji heimurinn fékk hana senda Pakkaða inn í pólitískt gullofið net Þeir biðja um frið handa ykkur Sum ykkar í einlægri trú Í orðum ykkar felst viss styrkur Samt er Keimur orðanna súr Þið talið um frið í þetta mörg ár Sannleikur bombunnar er sár Styrjöldin tók aldrei enda Þriðji heimurinn hýsti hana í 40 ár