Í dimmri götu með fölhvít ljós, Þar finnur þú enga ást, Aðeins snoppufríð andlit sem þrá þitt hrós, Brosandi að þér dást. Sætir strákar para sig Í stífu leðri með Presley lokk, Á götuhornum blikka þig, Inni á börum spila rokk. Ódýr hótel með forna frægð Muna tímana tvenna, Í sætum strákum er engin þægð Sem hanga og engu nenna. Þú sérð þá rífast eins og mellur í Róm, Þeir öskra, grenja og hlægja, Snúa sér við, brosa með augun tóm, Með tungunni varirnar fægja. Sætir strákar (sætir strákar) selja sig Fyrir krónur og kreditkort, Í dimmum portum sjúga þig, Draumar sem hverfa á brott. Ódýr hótel með forna frægð Muna tímana tvenna, Í sætum strákum er engin þægð Sem hanga og engu nenna. Í dimmri götu með fölhvít ljós, Þar finnur þú enga ást, Aðeins snoppufríð andlit sem þrá þitt hrós, Brosandi að þér dást. Sætir strákar para sig Í stífu leðri með Presley lokk, Á götuhornum blikka þig, Inni á börum spila rokk. Sætir strákar Sætir strákar