Þegar Steeebbi fór á sjóinn, þá var sól um alla jörð, Og hún sat á bryggjupollanum hún Lína Grét í vasaklút og svuntuhorn og svartan skýluklút Og hún sá á eftir Stebba á hafið út. Og hann Stebbi út við lunningu á lakkskóm svörtum stóð Upp á Línu renndi karlmannlegum sjónum. Nei þeir kveðja ekki margir svona ást og svona þrá Eða sigla burtu spariskónum á. Og hann Stebbi var að hugsa meðan hægt þeir sigldu út Hversu hetjuleg sú kveðjustundin væri Hlutverk réttu: dapra stúlkan og hinn djarfi ungi sveinn Drengilegur svipur, harður eins og steinn. Meðan Stebbi var að hugsa þetta höfninn sagði bless Og á hafsins öldum skipið fór að velta Yfir borðstokk nokkrar gusur komu glettnum öldum frá Svo að gefa tók nú spariskóna á. Og hún Lína enn á bryggjunni svo beygð og döpur sat Þegar bátur vona hennar aftur sneri "Upp þú fjandans æludýrið" öskrað var þá dimmum róm Og einhver steig á land í blautum spariskóm. Já vér sigldu marga hetjuför í huga vorum út Og í hörðum leik af drengjum öðrum báru En í dagsins heimska lífi, margur draumur okkar þó Varð að deyja því við gátum ekki nóg Lalalalalalalalala Lalallalalalallalalalalalala En í dagsins heimska lífi margur draumur okkar þó Varð að deyja því við gátum ekki nóg