Er ég kem heim í Búðardal Bíður mín brúðarval. Og ég veit það verður svaka partý. Bíð ég öllum úr sveitinni, Langömmu heillinni, það mun verða veislunni margt í. Ég er lukkunnar pamfíll, svei mér þá. þó ég hafi ekki víða farið. Ég er umvafinn kvenfólki, það get ég svarið, Og minna gagn gera má. Þegar vann ég í Sigöldu Meyjarnar mig völdu Til þess að stjórna sínum draumum. En nú fer ég til Búðardals, Beint heim til kerlu og karls Sem af gleði tárast í taumum. Er ég kem heim í Búðardal Bíður mín brúðarval. Og ég veit það verður svaka partý. Bíð ég öllum úr sveitinni, Langömmu heillinni, það mun verða veislunni margt í.