Þeir sögðu að ég væri þorparinn þorpari í þorpinu Og kjaftasögur kunni fólk um mig ég flutti burt úr þorpinu Svo kem ég aftur löngu síðar Til að líta á gamla staðinn minn Tvær gamlar konur stungu saman nefjum: þarna kemur þorparinn Nú lá mín leið um stræti stórborga Og oft var ég þar einmana ég veit samt ekki hvers ég saknaði En upp af svefni vaknaði Hér kem ég aftur svona löngu síðar Til að líta á staðinn minn Og finn að ég er enn í eðli mínu Sami gamli þorparinn Þau byrja öll og enda alveg eins Líkt og milli sleggju og steins Með ógnar brimöldu á aðra hönd Og sjoppu út við gráa strönd Hér kem ég aftur svona löngu síðar Til að líta á staðinn minn Og finn að ég er enn í eðli mínu Sami gamli þorparinn Á meðan grösin uxu í vorinu Unnum við í slorinu Hjá einu af fyrirtækjum sambandsins Inn á reikning félagsins Svo kem ég aftur svona löngu síðar Til að líta á staðinn minn Og finn að ég er enn í eðli mínu Sami gamli þorparinn Og finn að ég er enn í eðli mínu Sami gamli þorparinn