Hver var það sem hló Að sínum litíl sigldu löndum Sem skildu ekki skáld og förumenn Klæðalítill, fátækur á köldum Íslandsströndum Hann kemur fram í huga okkar enn Var hann helgur maður Eða latur flækings hundur Var hann sendur til að vekja nýja von Hvað var það, minn kæri Sem þú vildir okkur segja þú frægi, skrýtni Sölvi Helgason Líkt og Kristur forðum Varstu krossfestur af lýðnum Sem til leti taldi heimspeki og list Hög var hönd og hugur þinn Og að þér hændust börnin Og marga heita konu fékkstu kysst Varstu helgur maður Eða aðeins flækingshundur Varstu sendur til að vekja nýja von Hvað var það minn kæri Sem þú vildir okkur segja, þú frægi, skrýtni Sölvi Helgason Oft þú hafðir himininn Að þaki þínu um nætur Og þráðir aðeins frelsi og fera grið Undir aldrei búandahokri, Festi hvergi rætur því hugur stefndi út á önnur svið Upp til hárra fjalla þar sem Fálkar einir fljúga Þú fluttir þína bæn og þína von Og þó að lýður segði Að þú þreyttist seint að fljúga Varstu heill og sannur Sölvi Helgason Varstu heill og sannur Sölvi Helgason Varstu heill og sannur Sölvi Helgason Varstu heill og sannur Sölvi Helgason Varstu heill og sannur Sölvi Helgason