Nei, situr ekki fýlustrákurinn í strætóskýlinu og er auðvitað grautfúll! Þegar hann sér kall með kaskeiti koma labbandi fer hann strax að kvarta og kveina ... Ég vild'ég væri forríkur Og ætti kagga, höll og tvær snekkjur Svona svona, ræfillinn Hertu upp hugann, elsku kallinn minn Ég segi það satt - ég hef það skítt Mig vantar peninga og vil fá þá frítt Uss! það er sumar og úti heitt Og blómin og sólin kosta ekki neitt Ha? Hvað heitir þú eiginlega, maður? Ég heiti Villi Stuðmundsson Ég er í stuði lon og don Hér er gleði og gaman Og við syngjum saman Brjálað stuðlag Ég heiti Villi Stuðmundsson Og þetta er Mugison (Halló!) Hér er gleði og gaman Og við syngjum saman Brjálað stuðlag Gjörsamlega algjörlega meiriháttar brjálað stuðlag! Já, en fýlustráknum fannst lítið til koma og hélt áfram að kvarta og kveina ... Mér finnst sólin vera leiðinleg Og allir hafa það miklu betra en ég Hvað voðalega ertu súr! Viltu ekki skreppa og fara í göngutúr? Hvað ertu alveg snarklikk-ó? Sérðu ekki að ég er að bíða eftir strætó? Nú er nema von þú sért gugginn og grár Hér hefur enginn strætó komið í sautján ár! (Sautján ár! Þú ert alveg snarklikkaður maður!) Ég heiti Villi Stuðmundsson Og ég heiti Mugison Hér er gleði og gaman Og við syngjum saman Brjálað stuðlag Ég heiti Villi Stuðmundsson Og ég heiti Mugison Og ég heiti Jakob Frímann Magnússon (Magnússon) Hér er gleði og gaman Og við syngjum saman Brjálað stuðlag Gjörsamlega algjörlega meiriháttar gasalega dúndurfjörugt hrikalega svakalega brjálað stuðlag! Jæja vinur, viltu kannski að ég taki fyrir þig eitt stutt sóló ha? Tja nei, ég myndi nú frekar kjósa það ekki! ♪ Við heitum Villi, Son og Kobb Stuð og fjör er okkar djobb Hér er gleði og gaman Og við syngjum saman Brjálað stuðlag Við heitum Villi, Son og Kobb Stuð og fjör er okkar djobb Hér er gleði og gaman Og við syngjum saman Brjálað stuðlag Gjörsamlega algjörlega meiriháttar gasalega Dúndurfjörugt hrikalega svakalega rosalega ægilega þægilega tryllingslega villingslega Gebbað kúl og einfaldlega algjörlega Brjálað stuðlag!