Yfir fannhvíta jörð leggur frið þegar fellur mjúk logndrífa' á grund. Eins og heimurinn hinkri' aðeins við, Haldi niðr' í sér andanum um stund. Eftirvæntingu' úr augum má sjá, Allt er eitthvað svo spennandi í dag. Jafnvel kisa hún tiplar á tá, þorir tæplega að mala sitt lag. Svo berst ómur og samhljómur Til eyrna af indælum söng. Tvíræð bros mætast, og börnin kætast En biðin er börnunum löng. Loksins kveikt er á kertum í bæ, þá er kátt um öll mannanna ból. Og frá afskekktum bæ út við sæ ómar kveðjan um gleðileg jól. Svo berst ómur og samhljómur Til eyrna af indælum söng. Tvíræð bros mætast og börnin kætast En biðin er börnunum löng. Loksins kveikt er á kertum í bæ, þá er kátt um öll mannanna ból. Og frá afskekktum bæ út við sæ ómar kveðjan um gleðileg jól.