Slær á hafið himinblæ, Hyllir undir dranga, Geislum stafar sól á sæ, Signir grund og tanga Út með sænum einn jeg geng, Að er hrannir falla, Heyri' í blænum hörpustreng Hafmeyjanna gjalla Við þann óminn eyk jeg spor út við svarta dranga; það eru hljómar þínir, vor, þeir til hjarta ganga!